Leita hér...
Sparið 17.995 kr.
Crafted Bátaskór úr Leðri með Vibram® Sóla
TB0A5S99-2386655
Vörulýsing
Klassískir og vandaðir Timberland® Crafted bátaskór sem sameina tímalausa hönnun, þægindi og framúrskarandi handverk. Skórnir eru úr Premium Timberland® leðri og henta jafnt við hversdagslegan sem sparilegri klæðnað. Skórnir eru handsaumaðir með hefðbundnum aðferðum, sem gefur þeim fágað yfirbragð og vandaðan frágang. Leðurklætt innlegg og millisóli úr leðri auka þægindi og undirstrika gæði skónna. Slitsterkur Vibram® gúmmísóli veitir gott grip og endingu við daglega notkun. Tímalausir leðurskór sem ættu að vera í fataskápnum þínum.
Vibram® gúmmísólar eru framleiddir úr miðlungsmjúkri gúmmíblöndu sem veitir framúrskarandi grip á grýttu og ójöfnu undirlagi. Sólarnir eru sérstaklega hannaðir með sveigjanlegum svæðum og fíngerðu mynstri sem aðlagast undirlaginu. Þessi hönnun dregur úr þyngd skónna, eykur sveigjanleika og tryggir hámarksgrip og stöðugleika við fjölbreyttar aðstæður.