Leita hér...
Sparið 20%
Euro Hiker Mid Nubuck-leður Gönguskór
TB0A2PUS-010
Vörulýsing
Klassískir og vandaðir Timberland® Euro Hiker gönguskór í hinni þekktu „Beef & Broccoli“ litasamsetningu sem á rætur að rekja til götutísku Brooklyn á tíunda áratugnum. Skórnir sameina tímalausa hönnun, góða endingu og þægindi og henta jafnt í gönguferðir sem til daglegrar notkunar í borginni. Ytra byrði skónna er úr slitsterku Premium Timberland® leðri og netefni. Að innan er ReBOTL™ fóður sem inniheldur að minnsta kosti 50% endurunnið plast. EVA-innlegg og EVA-millisóli veita góða dempun og þægindi við hvert skref, en stálstyrking í sóla veitir góðan stuðning við ilina og eykur stöðugleika við göngu. Slitsterkur gúmmísóli veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi.
Vandaðir og þægilegir gönguskór sem sameina sterka arfleifð Timberland, klassískan útivistarstíl og nútímalegan götustíl.