Euro Hiker Mid Nubuck-leður Gönguskór

TB0A2PUS-010

Klassískir og vandaðir Timberland® Euro Hiker gönguskór í hinni þekktu „Beef & Broccoli“ litasamsetningu sem á rætur að rekja til götutísku Brooklyn á tíunda áratugnum. Skórnir sameina tímalausa hönnun, góða endingu og þægindi og henta jafnt í gönguferðir sem til daglegrar notkunar í borginni. Ytra byrði skónna er úr slitsterku Premium Timberland® leðri og netefni. Að innan er ReBOTL™ fóður sem inniheldur að minnsta kosti 50% endurunnið plast. EVA-innlegg og EVA-millisóli veita góða dempun og þægindi við hvert skref, en stálstyrking í sóla veitir góðan stuðning við ilina og eykur stöðugleika við göngu. Slitsterkur gúmmísóli veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi.

Vandaðir og þægilegir gönguskór sem sameina sterka arfleifð Timberland, klassískan útivistarstíl og nútímalegan götustíl.


Image
Sendum frítt pantanir yfir 15.000 kr.
Image
Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun
Image
Greiðslumöguleikar - kort og netgíró