Leita hér...
Jack Ökklaskór úr mjúku rúskinni með reimum
5000015107-001
Vörulýsing
Jack herraskór, stílhreinir og vandaðir í klassískum Wallabee-stíl. Skórnir eru úr mjúkri nautshúð með fallegri, flauelsmjúkri rúskinnsáferð sem gefur þeim náttúrulegt og afslappað yfirbragð. Einkennandi mokkasíu saumar undirstrika klassíska hönnun skónna og gefa þeim vandaðan og tímalausan svip. Að innan er mjúkt míkrórúskinnsfóður og þægilegt innlegg úr endurunnum örtrefjum sem anda vel. Innleggið er með minnissvampi (memory foam) sem lagar sig að lögun fótarins og veitir góða dempun og þægindi við daglega notkun. Sérhannaður TR-sóli með mótuðu mynstri, þróaður sérstaklega fyrir Marc O’Polo, veitir gott grip og stöðugleika. Tímalausir skór sem sameina klassíska hönnun, vönduð efni og mikil þægindi. Þeir passa einstaklega vel við gallabuxur, chino-buxur eða annan afslappaðan hversdagsfatnað.