Stormbucks Oxford Vatnsheldur Leðurskór

TB0A5TKT-023

Klassískir og vandaðir Timberland® Stormbucks herraskór sem sameina fágaða hönnun, góð þægindi og áreiðanlega vörn gegn vætu. Skórnir henta einstaklega vel í vinnuna og við daglega notkun, þar sem bæði snyrtilegt útlit og þægindi skipta máli. Skórnir eru úr vatnsheldu Premium Timberland® leðri og með þéttum, vatnsheldum saumum sem hjálpa til við að halda fótunum þurrum í bleytu. Að innan er ReBOTL™ fóður sem inniheldur að minnsta kosti 50% endurunnið plast. Anti-Fatigue innlegg er sérstaklega hannað til að draga úr þreytu í fótum og veita langvarandi stuðning og dempun, Innleggið er hægt að fjarlægja. EVA-millisóli eykur enn frekar þægindin og gerir skóna góða til daglegrar notkunar.
Slitsterkur gúmmísóli veitir gott grip og stöðugleika við göngu. 
Tímalausir og þægilegir leðurskór sem passa vel við bæði snyrtilegan vinnufatnað og hversdagslegri klæðnað.

Image
Sendum frítt pantanir yfir 15.000 kr.
Image
Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun
Image
Greiðslumöguleikar - kort og netgíró